Nýtt tungl Plútós

    Hinn 11. júlí 2012 tilkynntu bandarískir stjörnufrćđingar ađ á ljósmyndum sem teknar voru međ Hubble geimsjónaukanum á tímabilinu frá 26. júní til 9. júlí hefđi sést áđur óţekkt tungl á braut um dvergreikistjörnuna Plútó. Tungliđ er hiđ fimmta sem finnst viđ Plútó og hafa finnendur kallađ ţađ "P5", en hiđ opinbera bráđabirgđaheiti er S/2012 (134340) 1. Ţađ er hiđ daufasta af tunglum Plútós og ţví ađ líkindum minnst ţeirra. Braut hins nýja tungls liggur milli brauta tunglanna Charon og Nix, og er ţađ ţví annađ í röđinni taliđ frá Plútó. Nánari upplýsingar er ađ finna í yfirlitinu Tungl reikistjarnanna
 
Ţ.S. 25.7. 2012

Almanak Háskólans